#1248

#1248

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Hugsa ég um þig heillin góð og heilsu þína,
2 læknar þig að líkum pína,
3 læt ég því mitt ljósið skína.
 
4 Þraut er oft á þessu landi þorran þreyja,
5 þér ég vil með þessu segja
6 þú munt ekki að sinni deyja.
 
7 Læknar taka línurit og ljósar myndir
8 leita uppi liðnar syndir
9 á lystisemdir stjörnublindir
 
10 Einblína á þinn innrimann og eðlishvatir
11 í eðli sínu ósköp latir
12 ekkert vita, kylliflatir
 
13 Tól á ég og tæki sem að taka úr verki
14 óbrigðult sem Oddur sterki
15 ef ég mætti ganga að verki.
 
16 Ef ég mætti því um kroppinn á þér strjúka
17 systir góða, silkimjúka
18 sársaukanum myndi ljúka.
 
19 Upp þú stæðir engillinn með enga pínu,
20 öll í standi feikna fínu
21 ef færir eftir ráði mínu.
 
22 Lengist dagur, ljósið eykst og lifna grundir
23 lífið vaknar, ljúfar stundir,
24 lystisemdir, endurfundir.

Athugasemdir (1)