#1249

#1249

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Ég sögu litla vil segja
2 um sannan heiðursmann.
3 Í úthverfum á hann heima
4 Andrés menn kalla hann.
 
5 Hann má ekki vamm sitt vita,
6 veiðir því aldrei með stöng,
7 en gleðst yfir gildruveiðum
8 enda glæstari aflaföng.
 
9 En kauði er nokkuð klofinn
10 í kroppum býr önnur sál,
11 Hinrik trú'ég sá heiti
12 hann er nú flæktur í mál.
 
13 Hinrik ók hratt á jeppa
14 Hrunakróks upp í land
15 í vísindaskyni að veiða
16 en veiddi ekki grand.
 
17 Leyfi hafði þó lítið
18 læddist samt niður að á.
19 Til vara lét "vinnumanninn"
20 veiðiprikið fá.