19. júlí 1969
1
Kem ég til þín með kvöl og pín,
2
um kvef og velgju ég kvarta.
3
Réttir mér skrýn þá rausnin þín,
4
með rauða belgi og svarta.
5
Gleypt hef ég belgi, í gaupnir horft,
6
gúlpað mixtúru, sallafín:
7
Spir. amn.anis Syr. cod fort
8
Sur. Thymi Diphenhydramin.
9
Ef kvefið verður enn kyrrt í mér
10
kannske allt fram í dauðan.
11
Getur skeð að ég gjaldi þér
12
gráan belg fyrir rauðan.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.