20. júlí 1969
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (02/08/2026), Kristmann Magnússon (02/08/2026)
1
Magnús heitir maðurinn
2
mjög af pestum hrjáður
3
áður var þó álitinn
4
að þroska mjög vel bráður.
5
Nú er ég kominn Magnús minn
6
meinin þín að laga,
7
viltu því nú vinurinn
8
vel og prútt þér haga.
9
Þótt þig hrjái hósti og kvef
10
þú halda skalt þó sönsum
11
því aldrei ég það vitað hef
12
að það valdi krönsum.
13
Þú skalt vera væni minn
14
vongóður um bata
15
það verður ei i þetta sinn
16
þér yfir verði að kvaka.
17
Gleyptu það sem gef ég hér
18
glundur og pillur góðar
19
mundi þá meiga segja mér
20
að Magnúsi batni óðar.
Athugasemdir (1)