15. ágúst 1969

#133
1 Þó að mig lítil þjái pín
2 þarf ég samt að nauða,
3 svo holla læknishöndin þín
4 hlífi mér frá dauða.
 
5 Nú brúka ég sjaldan Brufferin,
6 ber þó við á stundum,
7 þegar gigtin góða mín
8 grasserar báðum mundum.
 
9 Kitlar mig oft í kok og nef
10 kvefið, í þurrum hita.
11 Að þínum ráðum reynt ég hef
12 rétta úðun vita.
 
13 Bið ég því enn um Bufferinskammt,
14 og bragð af í úðaglasi.
15 Í hófi allt skal hafa samt
16 og hætti þessu masi.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.