Bókamarkaður á austurleið 1. mars 1971
1
Basl er með bókamarkað,
2
byrjaði við Austurvöll,
3
skolfið við Skólavörðu,
4
skítleg er sagan öll.
5
Svo inn í Sólarheima
6
í Silla og Valda náð,
7
sífellt á móti sólu
8
sagan er þyrnum stráð.
9
Áfram halda í austur
10
arka á Sprengisand,
11
enda á austurfjörðum,
12
allt er nú þrotið land.
13
Einblína enn í austur
14
útlitið varla gott.
15
Ritskoðun er hjá Rússum,
16
sem reka þá strax á brott.
17
Komast þeir loks til Kína,
18
Kínverja hlýtt er þel,
19
menningarbylting hjá Maó
20
mætti því takast vel.
21
"Sjá hér hve illan endi"
22
fær ósvífið háttalag.
23
Ég lengi ei þennan lestur
24
og lengi ei þennan brag.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.