20. mars 1971
1
Hver er hvur og hvur er hvurs?
2
Jón Helgason lofar Jón Helgason
3
og Jón Helgason reynir að skíra.
4
En að nokkur skilji, er varla von,
5
því vont er að greina þá fíra.
6
Eru á skriftir ekki sparir
7
um ýmiss efni lon og don.
8
Men hvordan mon hun Klara klarer
9
at kende sin Jón Helgason?
10
Velvakanda viturt hjal
11
víst því gerði skóna,
12
að ef merkja minnkinn skal
13
merkja þarf og Jóna.
14
Þeim, sem aldrei sötrar sull
15
og sérvisku er hlaðinn,
16
verður upp á bögu-bull
17
boðið þess í staðinn.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.