Bókamarkaður 1974

#30
1 Bísar tveir með bókamarkað
2 býsna lengi hafa slarkað,
3 á útgefendum alltaf traðkað,
4 enga samúð haft með þeim.
5 Halda svo með hagnaðinn á kvöldin heim.
 
6 Á Hagkaup þeir nú hafa snúið
7 í húsnæði til þeirra flúið,
8 halda þeir geti heimskan rúið
9 og haft af því sitt lifibrauð.
10 Ágirndin úr öllum æðum ekki er dauð.
 
11 Í verkfallslok með veiku starti
12 vogar opna, sá litli bjarti.
13 Langtum verri er sá langi svarti,
14 han lukker sgu ej för klokkon syv,
15 den hersens forbandede frakketyv.
 
16 Víst ég nenni ei vaka lengi
17 við að hirta þá markaðsdrengi.
18 Krónan stöðugt í gömlu gengi,
19 þú getur reynt að trúa því.
20 Oftar syng ég aldrei um þá dirrendí.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.