Bókamarkaður 1975
1
Bágt er nú enn með þennan bókamarkað,
2
bara eitt ár - svo er út honum sparkað.
3
En ennþá tókst honum afdrep að finna,
4
nú iðnaðarmenn ætla honum að sinna.
5
Í kjallaraholu þeir kúldra honum niður
6
líkt og kalla úr "strætinu" áður var siður.
7
Já, menningin verður að lúta oft lágt
8
mikil lifandi skelfin eiga þeir bágt.
9
En líklega verð ég að lýsa þeim nánar
10
þeim litla og stóra, nú gamanið gránar.
11
Sá litli svo undurhreinn, allur svo ljós,
12
sá langi og svarti á ei skilið neitt hrós.
13
Sá litli er orðheldinn, segir oft satt,
14
sá langi er ei ánægður nema svíki hann skatt.
15
Já, sjáðu bara svipinn, hann er svartur og ljótur,
16
og sjái hann pening, þá er hann fljótur.
17
Hann lætur sér ei neitt fyrir brjóstinu brenna,
18
það, sem aflaga fer er allt honum að kenna.
19
Ef væri ei fyrir þann litla vesturbæjarlaugin
20
væri brostin fyrir löngu peningataugin.
21
Í blöðin þeir ljúga um bækur og menning,
22
og býsna er vafasöm sú margþvælda kenning,
23
að krónan sé ennþá í gömlu, góðu gengi.
24
Getur nokkur trúað að þeir lifi á því lengi?
25
En samt er það nú svona, menn láta í sig ljúga
26
og líklega tekst þeim ennþá í gegnum þetta að smjúga.
27
Miljónir rúlla, því margur á enn aura,
28
mikið er það skrýtið að skipta við þá gaura.
29
Jónas er hættur að tala, hann argar og gargar,
30
hann ansar ei rökum en þvælir og þvargar.
31
Það er synd hvað pýnd er í honum peningataugin.
32
Í pottinn með hann - bjargað hefur mörgum vesturbæjarlaugin.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.