Seingetinn bókamarkaðsbragur 1976
1
Menning væri í molum
2
í minni höfuðborg,
3
ef ekki væri árlega
4
eitt bókamarkaðstorg.
5
Þar eigum við allt undir
6
að ekki bregðist þeir,
7
sá langi og sá litli,
8
ég lýsi þeim aðeins meir.
9
Ágirnd skín úr augum
10
öðrum þeirra mest,
11
enda hefur hann eignast
12
obbolítinn hest.
13
Á bak sér oft hann bregður
14
með bífurnar löngu sín,
15
sérstaklega á sunnudögum
16
er sólin bjartast skín.
17
Hokinn situr hestinn,
18
hörmung til að sjá,
19
riddarinn einn ræfill
20
rifinn svelli frá.
21
Bröltir stundum brokkið
22
bregður þá á skeið,
23
en lengstum lestaganginn
24
lötrar sína leið.
25
Langur er og leiður
26
með löngu skankana,
27
en fimur og fingralangur
28
er fer hann í bankana.
29
Mála ég hann ei meira,
30
myndin er orðin ljót.
31
Helst ætt'ann að hýrast
32
í húsi er nefnist "Grjót".
33
Nú skal lýsa þeim litla
34
ljóshærða kollinum,
35
með bláu augun sín blíðu,
36
berst ei með sollinum.
37
Allt vildi hann öðrum gefa
38
aldrei neitt tekur gjald.
39
Nafn hans, getið að góðu,
40
greypt á sögunnar spjald.
41
Taugar hans eru í tætlum,
42
til það kemur af því,
43
blöskrar svo bröltið þess langa
44
og hans bölvaða havarí.
45
Því fer hann sem fyrst í suður
46
með frúna á Canarí,
47
svamlar í heitum sjónum
48
í sólskini og dirrindí.
49
Af þessu álykta mætti,
50
eitthvað er beggja blands,
51
annar á truntutölti
52
hinn töltir utanlands.
53
Bók'útgefendur blæða
54
býsn er hvað endast þeir,
55
komið er nú að kveldi
56
ég kveð ekki um þá meir.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.