Bókamarkaður 1976

#33
1 Meðan benzínið endist á bílum er harkað,
2 já, bílstjóraliðið er býsna kjarkað,
3 þeir bera úr býtum Bókamarkað.
 
4 Loðnan er farin í landi er slarkað,
5 langtímum setið, um launin þjarkað,
6 lokum þá inni á Bókamarkað.
 
7 Enn lifir í kolunum, lengi hefir snarkað,
8 í dómsmálaráðherran drjúgum er sparkað,
9 hann lendir að lokum á Bókamarkað.
 
10 Á friðaða svæðinu freklega skarkað,
11 ryðkláfar "Betu", réttlæti traðkað.
12 Hrellum því breta með Bókamarkað.
 
13 Í bræðralagi um bókamarkað
14 í blíðu og stríðu hafa darkað,
15 á útgefendum aldrei traðkað,
16 ekkert fást um eigin hag.
17 Unnið er þar myrkra á milli,
18 maga- fá þeir sjaldan fylli,
19 syngja þó stöðugt sama lag.
 
20 Syngja: "Það er mesta mildi
21 minnkuð króna í fullu gildi".
22 Sagt þér gæti víst ef vildi
23 margt voðalegt um þessa tvo.
24 Einn er stór og annar lítill
25 obbolítið stærri en Trítill,
26 hinn segir oftast ho, ho, ho.
 
27 Sá stóri á litla lemur sviðin
28 sá litli dúnkar hinn í kviðinn,
29 sú stund er núna löngu liðin
30 er lifðu í sátt og bróðerni.
31 Bægslast nú og bölva og ragna
32 bókaflóðið stöðugt magna.
33 Þvílíkt herjans hátterni.
 
34 Gerast daufir geislabaugar,
35 garpar sækja ei framar laugar,
36 peninganna píndar taugar,
37 Pétur sákti hljálpi greitt.
38 Dangli þeir á dyr hjá honum,
39 dugar vart þeim mammonsonum
40 Passíusálmaprangið eitt.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.