Bókamarkaður á Góu 1978
1
Bágt er nú stand í Barmahlíð
2
Bókamarkaðar komin tíð.
3
Truflun komin í taugarnar
4
þótt talsvert menn sæki í laugarnar.
5
Peningataugin er teigð og spennt
6
tíðum hefir það manninn hent.
7
Helta að auki hrjáir hann,
8
hörmung hvað lagt er á einn mann.
9
Haltur með Jónasi högtir hann samt
10
hringferð um bæinn, sem þeim er tamt.
11
Þefandi og leitandi að literatúr
12
lifna við allir, ef hann er klúr.
13
Tíminn talar um menningarmátt
14
mann skal ei undra, úr þeirri átt
15
er vart að undra að slíkt skuli skrifa
16
skribentar þeir, sem á ríkinu lifa.
17
En þetta líkar þeim langa og ljóta
18
sem lífinu lifir með hross milli fóta.
19
Hann tendrast í framan og talar hátt
20
Um tilganginn góða og menningarmátt.
21
Mikið er talað um tæran tón
22
trítilóðir, þau erkiflón.
23
Að tónninn þeirra sé tær og hreinn
24
trúað því getur ekki neinn.
25
Hér áður fyrr tók sá langi oft lagið
26
hann lærði að syngja, kann víst fagið,
27
en hvort hann náði tóninum tæra
28
er talsverð spurning - það er ekki nóg að læra.
29
Nei, hér kveður allt við sama són
30
hér syngur enginn hinn tæra tón.
31
Röddin er há - en hljóminn vantar,
32
helvítis garg, sem enginn pantar.
33
Það er vitað að báðir þeir vilja vel
34
en vantar máttinn, því ei lengur dvel
35
vona bara að lokum þeir læri
36
lagið, þar sem heyrist tónninn tæri.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.