1979
1
Bókamarkaðurinn í Ársölum.
2
Andleysið mig er að hrjá, í eymd ég stefni.
3
Þetta er ekkert yrkisefni
4
engin sérstök nöfn ég nefni.
5
Hvað skal segja um seggi þá
6
er selja bækur Markaði á?
7
Útgefendur ávallt flá
8
alveg inn að skinni.
9
Þeir eru góðir þessi stóri og minni.
10
Útlit þess langa var lengi svart,
11
sá litli með yfirbragð fremur bjart,
12
nú er úti um allt það skart.
13
Grár sá langi en grettinn hinn.
14
Hvort gott sé innrætið? Drottinn minn!!
15
Flækst þeir hafa stað úr stað,
16
stjórnun ei betri, en hvað um það,
17
loks þeir hafa nú brotið blað,
18
á Bæjarhálsi eru lentir.
19
Með brölti og bramli bíða árangurs spenntir.
20
Sjálfum sér hafa til hjálpræðis,
21
Hringkonur flekað til liðsinnis.
22
Með aðalforseta Alþingis
23
einnig þeir reyna að skarta.
24
Fjáraflamenn má kall þann bjarta og svarta.
25
Um gildi krónu er gasprað enn,
26
gatslitin er sú plata senn.
27
Lengi er hægt að ljúga í menn
28
og lýgilegt hvað menn trúa.
29
Sannleikanum sitt á hvað má snúa.
30
Og þetta mas um menninguna,
31
meira að segja vitnað í þrenninguna.
32
Þótt byðu þeir okkur Biblíuna
33
í billegum (svarta)-markaðsprís,
34
bið yrði eflaust að bísarnir kæmust í Paradís.
35
Nú er komið nóg að sinni,
36
næst er því að máli linni.
37
Satt og logið samantvinni
38
seggir þessir um árabil.
39
Og seint þeir fari fjandans til.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.