Bókamarkaður 1980
1
Lof sé þeim sem listum unna,
2
leiða oss til nægtabrunna.
3
Verst er ef þeir klæki kunna
4
og kúnstina þá vel þekkja.
5
Einfaldan er auðveldast að blekkja.
6
Þekki ég tvo bóka-bísa
7
burðast skal þeim nánast lýsa,
8
englahjörtu engin hýsa,
9
innrætið líkast myrkri.
10
Bókamarkaði stýra þeir hendi styrkri.
11
Annar þeirra er langur, ljótur.
12
Líklega hinn versti þrótur.
13
Ríður yfir gjár og gjótur
14
á grárri truntu sinni.
15
Orð, sem lýsa engin á í eigu minni.
16
Hinn er að vexti varla stór
17
viðbragsfljótur, ekki sljór,
18
kjaftfor, oft í orðum stór,
19
enginn vandi að skilja 'ann.
20
Óumbúinn sannleikann þá segir 'ann.
21
Ef vilt í friði veg þinn ganga,
22
varast skalt þann stutta og langa,
23
bókum á þig báðir pranga
24
á býsna háum prísum.
25
Lík ég þar með lélega kveðnum vísum.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.