Herra bóksali Jónas Eggertsson(alias Don Quixote) fimmtugur 10. ágúst 1975

#40
1 Déskoti líkur Don Quixote
2 djarfur berst hann spilling móti,
3 aðstoð þó hann enga hljóti
4 oft hann fær að njóta sín.
5 Burðast með sinn "Bókadjöful",
6 bóksala er nú stundum gjöful,
7 en baráttan er ekkert grín.
 
8 Á "Markaðnum ber hann veg og vanda,
9 virðing mun hann aldrei granda,
10 endu munu opnar standa
11 allar gáttir himnaranns.
12 Geði er við hann gott að blanda,
13 gerir leysa hvers manns vanda.
14 Lífið verð' honum ljúfur dans.
 
15 Nú er líkt og lýsi af honum
16 sem landsins frjálsu og björtu sonum,
17 uppáhald hjá öllum konum,
18 ásýndin sem engilmynd.
19 Mikið er hvað maðurinn breytist,
20 mildi og blíðu höfuð skreytist,
21 líkt og hann væri laus við synd.
 
22 Yfir þér góðar vættir vaki
23 veröldin þó að góti blaki,
24 tolldu sem lengst á truntubaki
25 á tölti og brokki lífsins veg.
26 Mér hefur sýnst þú mikið svartur,
27 á myndinni ertu engilbjartur.
28 Já, oft er tilveran tætingsleg.

Eftirmáli

Með bestu afmæliskveðjum Þinn einl., M.Þ.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.