Hr. bankastjóri Kristján Oddson 18. apríl 1975

#6
1 Vappa ég niður í Verslunarbankann,
2 vonarfullur rétti skankann
3 og bankastjórann bljúgur bið.
4 Lánaðu mér nú ljúfi, góði,
5 litla fúlgu úr þínum sjóði
6 svo keypt mér geti greiðslugrið.
 
7 Þú skalt hafa þúsundfalda
8 þökk, og ég mun endurgjalda
9 allt með skilum, það eitt er víst.
10 Þér að veði vil ég gefa
11 virðing, sóma og fjölda bréfa,
12 hlýja og vísa himnavist.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.