MOTTO: Viðsjáll er dimmur Draginn margt drungalegt getur skeð. Á r a m ó t a u p p g j ö r ????
1
Á laugardag burt úr bænum
2
bruna halur og sprund.
3
Áður en úti er dagur
4
ætla að bænum Grund.
5
Allt gengur eins og í sögu
6
óðfluga rennur hjá,
7
Kjalarnes, Esja og Kjósin
8
komin að Brynjudalsá.
9
"Best er hér aðeins að æja
10
og úr sér rétta um stund".
11
Oddvitinn út úr jeppa
12
ástfanginn hjálpar sprund.
13
Labba svo léttum fetum,
14
líta í veiðihyl,
15
en loftið er ljótt og hrannað
16
og lítur út fyrir bil.
17
Aftur þá upp í jeppann
18
inn setjast hún og hann
19
aka svo inn fyrir Botninn
20
upp Draga-afleggjarann.
21
En viðsjáll er dimmur Draginn
22
margt drungalegt getur skeð.
23
Jeppinn í sköflum skröltir,
24
skelfur, og pían með.
25
Á miðjum Draganum drepur
26
djöfuls jeppinn á sér,
27
eldsneytið allt er búið,
28
ekki af stað hann fer.
29
Meyjuna kuldinn kvelur,
30
klædd í þunnt híjalín.
31
Oddvitann örmum vefur
32
ástin úr augum skín.
33
Nú bregður svo við að bíllinn
34
getur brunar niður hlíð.
35
Á fingur er brugðið baugum,
36
sem binda þau alla tíð.
37
Svona getur það gengið -
38
grefill þarf lítið til:
39
Skrjóð, sem að festist í skafli,
40
skafl eftir hríðarbil.
41
Ástvana í öngum mínum
42
yrki ég döpur ljóð.
43
Öðrum en mér var ætlað
44
ungt og blóðheitt fljóð.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.