Kaffistofan

#64
1 Dregur upp mynd með dár og spé;
2 drátthagur konstner Halldór P.
3 En ef að í hann fjandinn fer
4 ferlega skopast hann að þér.
 
5 Að karigera er konst og vandi
6 ef karakterinn er ekki í standi.
7 Þótt Magnús sé maður mikilsverður
8 manninn vantar svip - hann er svona gerður.
 
9 Hátt hlær Pétur og pípu púar
10 hans pundafjöldi stólinn drúgar.
11 "Þetta er hold, sem ég hef til vara"
12 hann segir snöggt - "og þegiðu bara".
 
13 Lárus Blöndal með bókamarkað
14 býsna lengi hefur þrefað, þjarkað.
15 Um menninguna hann malar hátt,
16 um mikinn gróða talar fátt.
 
17 Halldór Pálsson sitt höfuð skekur
18 því hárum dökkum nú fækka tekur.
19 Kaffið skenkir, hann kann sitt fag
20 Candy þjónar hann nótt sem dag.
 
21 Um Mannsa ég má ekki mikið segja,
22 málið og skylt, mér er best að þegja.
23 Að hann "véli" og pretti hið veika kyn,
24 ég var nú hreint ekki að gefa í skyn.
 
25 Í kaffistofunni er kátt og fjörugt
26 karp um þjóðmál - já það er öruggt.
27 "Og sannleikurinn er einmitt sá"
28 segir Lúðvík - og glottir þá.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.