ágúst 1972

#72
1 Þetta er mikið bölvað basl og blóðug seyra.
2 Enn mitt lengist asnaeyra,
3 ekkert gott nam frá þér heyra.
 
4 Láttu ekki lengur dragast lán að veita.
5 óðum magnast örðug streita,
6 eða ætlarðu kannski mér að neita?
 
7 Fari svo ég fái ei neitt, þig fjandinn hirði,
8 á afturfótum upp þig spyrði
9 andskotinn í Mammonsfirði.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.