Til Lúðvíks Jósefssonar í tilefni af sextugsafmæli hans þann 16. júní 13. júní 1974

#63
1 Láttu ei Framsókn fleka þig,
2 fraukan er heldur ótútlig.
3 Heim skaltu aftur hana senda
4 hryðjan er opin í báða enda.
5 Láttu hana ei trufla laxaveiðina
6 en layfð'enni að fara "hina leiðina".
 
7 Til hægri ættirðu að halla þér
8 það heldur vænlegra sýnist mér.
9 Þá verður landið með sterka stjórn,
10 stóra í sniðum, og lítil fórn
11 þótt Kaninn fái að kúra enn
12 í Keflavík með nokkra menn.
 
13 Haltu þitt strik, hvað sem hinir segja,
14 hundunum leyfðu að glefsa og geyja.
15 Gerðu vísitölunni verðug skil,
16 vandinn er leystur - sjáður til.
17 Að lokum þér óska til lukku með daginn
18 landhelgismálið og kosningaslaginn.

Eftirmáli

Með bestu afmælisóskum.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.