Til minnar heittelskuðu Grund-frúar Jóhönnu Guðjónsdóttur 13. júlí 1974
1
Legg ég á minn ljóðafák
2
þótt ljóðið verði mesta kák,
3
er þú hefir eignast stóran strák
4
og staðið þig eins og hetja,
5
til áframhalds þig aldrei mun ég letja.
6
Að barneignum þér bara snú,
7
mín blíða og fríða Grundarfrú.
8
Aðferðin er einföld sú.
9
Eitt eða tvö á ári.
10
Falleg jurt er fjögurralaufa smári.
11
Nú varð strákur, næst ég vil
12
að netta stelpu þú búir til,
13
ljósa og fríða með litaskil
14
líka mömmu sinni.
15
Góðar vættir gæfuþráðinn spinni.
16
Gæfan leiki við guttann þinn,
17
gef'onum rjóða og hrausta kinn.
18
Verði burðarmikill sem "babbi" sinn
19
en blíður eins og mamma.
20
Létt honum gangi að lífsins veg að þramma.
21
frá eilífðar-kærastanum.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.