20. febrúar 1971

#76
1 Lof sé þér fyrir ljóðrænt bréf,
2 lofið er sætt, þess notið hef.
3 En hvaðan kemur þitt kráarraus,
4 er karlinn orðinn snarvitlaus?
5 Vitneskju um það víst ég fæ
6 ef veiti þér stóran alveg "dry".
 
7 Álkóhólsbrautin oft er hál
8 Absint drekkur ei nokkur sál.
9 Kók og sítrón menn sötra mest
10 svínfullir verða þó fyrir rest.
11 Hér er menningin heldur slæm,
12 hvað drekkur þú í Rüdesheim?
 
13 Á suðrænum slóðum hvar sólin skín
14 sötrar þú kannske Rínarvín.
15 Að standa á þambi í þýskum bjór,
16 það finnst mér iðja þörf og góð.
17 Drekktu því vinur, drekktu vel,
18 drekktu með gát, en ekki í Hel.
 
19 Einn ég þekki óðarraft,
20 engan veifiskata,
21 lipran maður ljóðakjapt,
22 laukinn Jón í Fata.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.