5. febrúar 1971

#78
1 Mér þótti nú aldeilis færa mér fréttir
2 hin "Frjálsa verzlun", - ja, þeir eru nettir
3 að prenta sem púður er í.
4 Þekktur varstu að sprikla og spranga,
5 sprækur vélum í kvenþjóð að pranga,
6 og þreytist víst aldrei á því!
 
7 Dauðar lísnar mér detta úr hárum:
8 - að drengurinn skuli á duggaraárum
9 hafa dútlað við dínamít!
10 Við Nobel slíkt jaðrar og næsta vetur
11 nærðu honum Kiljan, ég sé ekki betur,
12 annað væri ekki nokkurt vit.
 
13 Og meiri tíðindi flutti sú "Frjálsa":
14 þú fús sért að væta of þurra hálsa,
15 og kráin sé kennd við hann Pfaff.
16 Þvílíkt afbragð að vita af veitingastjóra
17 með whisky og absint - og skammtana stóra,
18 en ekki neinn "half and half".
 
19 Að lokum eitt heilræði: Mundu það, Magnús,
20 meistari gamall, klókur og laxfús,
21 að styggja ekki stjórnmálamann.
22 Því enda þótt löngu sé dojur hann Dósi
23 kann Droddur enn þá að baula í fjósi,
24 eða boli ei betri en hann.

Eftirmáli

HVER ORTI??????? og hananú - með kveðju Ma-laus Majón

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.