10. maí 1970

#83
1 Til Bí-Bí.Þig ei rengi í þetta sinn
2 né þínum rökum hafni,
3 en - fyrst kommi er ei hann Krúsi þinn
4 kafnar hann undir nafni
 
5 Oft er hrelld mín aurasál,
6 Elli veldur trega,
7 legg þú eld í ljóð og mál
8 ljúfan yndislega.
 
9 Til Krúsa.
10 Hress í anda, hress í tali,
11 hristir til mín Krúsi ljóð.
12 Fyrrum oft um sílasali
13 seggur hraustur bátinn hlóð.
 
14 Þótt nú sé forna frægðin liðin
15 fáist helst við vélastand,
16 fari ei meir á fornu miðin
17 að fullu kominn þurrt á land,
 
18 er, sem fyrr í fararbroddi
19 - Pfaff og Candy hjálpa til -
20 álitinn er enginn loddi
21 á öllu kann hann bestu skil.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.