Til sker-bóndans 22. maí 1970
1
Úr myrku djúpi, Markús kæri,
2
mæna á þig í surnar,
3
finnst þú kominn kalls úr færi
4
í kast við mennsku skvísurnar.
5
Hafmeyjum huggun væri
6
að heyra snjöllu vísurnar.
7
Ef þú skyldir út á sjóinn
8
aftur leita seinna meir,
9
alltaf sama aflaklóin,
10
árátta, sem aldrei deyr.
11
Frúin þó að maldi í móinn
12
mundar hraustur fiskageir.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.