3. nóvember 1975
Einn er hugur, en er sál, / eitt og sama vilja. / Talað lipurt mjaðmamál / sem mjög er gott að skilja.
Vísur — leitaðu eftir titli eða texta.
150 vísur
Einn er hugur, en er sál, / eitt og sama vilja. / Talað lipurt mjaðmamál / sem mjög er gott að skilja.
Stikar um í stolnum frakka / stuttum, kannske af litlum krakka. / Á hestbaki sér í heldur makka,…
Leiki þér allt í lyndi / lífið, á brautum nýjum. / Gefi þér ást og yndi / óspart af straumum hlýjum.
Andinn er ut og sudur / ekki er loftið kalt / ylhyrar afmaelisoskir / okkar samt hafa skalt
Ef hendir þig aftur Helgi minn, / Huppu leiða í annað sinn, / farðu þá ekki fram með sæ, / forðastu Jónas og Ása í Bæ.
Ástæðan er ein og jöfn, / allir séð það geta. / Að koma skipi heilu í höfn / og hafa sigrað breta.
Þú þrammaðir inn í þennan heim / á þrettándanum fyrir 70 árum. / Fljótur til í fjörugt "game"…
Bogmarked aabner med kling og klang, / knalder endnu for syttende gang. / Titler og böger i tusindvis…
Ef lætur ei ótta, lífs við hel, / lama þrekið veika, / muntu lifa lengi og vel, / laus við heilagleika
Ef líturðu inn í Vesturver / víst er margt sem augað sér, / afgreiðslan lík og álkuger / enginn pappírssnepill.…
Guðrún Matthíasdóttir. / Margt þó fari á verri veg / vísast því mun flíka, / að ég er orðin efnileg / afturbatapíka.
Er óblíð tökin Ingveldar / eru mér til hrellingar, / þá hef ég mér til huggunar / að hennar njóti velvildar.
Þú verður mín þrautavörn / þessa lífs í stríði. / Mylja skattstað í skítakvörn, / skattstofunnar prýði.
Ef ég kem í Blöndals-búð / báglega mér það fellur, / að Agga litla, pen og prúð / pískri um Eldhúsmellur.
Í rúminu máttu Ragga dunda, / raunaleg, án ástafunda, / hjá þér mynd'eg þægur blunda / þótt þú sért með rauða hunda…
Lengist dagur, dimman dverr / drýgist sólargangur / lifnar hagur, léttist mér / laus við hugarangur.
Kveðju þér sendi Kristján minn / komdu sem fyrst í stólinn þinn. / Krankleiki allur kveðji þig…
Ósköp sæta og yndisleg' / eina þekki ég skvísu, / sem gerir allt er girnist ég / ef geri um hana vísu.
Ég bíð þig velkomna vinan bjarta, / sem vermir stöðugt mitt aldna hjarta. / Dimman hverfur en dagsljós skín…
"Markað-bóka" mega ei telja / manngarmar, sem bækur selja / finna verða fínna nafn. / Mannskepnuna má svo kvelja,…