Vísnavefur
Vísur — leitaðu eftir titli eða texta.
369 vísur
#1224
#1225
1
Þú minnir oft á Mona-Lísu
2
þá myndarlegu og þrýstnu skvísu,
3
eða Dala-kofa-Dísu
4
með dulúðlegt og dreymið bros
5
Augun djúp og dimm sem flos.
#1226
1
Allt frá því í Edensgarði Eva forðum
2
eplið át - fór allt úr skorðum.
3
Eyði ekki að því fleiri orðum.
4
Ávöxtur þess eplakjarna ætíð síðan
5
ótta vekur - eykur kvíðann.
6
Undirtón þótt hafi blíðan.
7
Fullt er tunglið, funar blóðið fellur meyja
8
forðast ekki frekan peyja.
9
Fátt er gott um það að segja.
#1227
#1228
#1229
#1230
#1231
#1232
1
Alltaf fer mitt ólma hjarta
2
undarlega hart að banka
3
Þegar birtist blíð hún Ranka
4
með blik Í augum, tvírætt bros,
5
ólgandi eins og Öskjugos
6
Meðan bóndinn burt á sænum
7
byltis sér á öldum grænum
8
löbbum við í blíða blænum
9
burt, í leit að grænni kvos,
10
á siðferðinu sífellt los.
#1233
#1234
1
Í ferðalag er fór hún út
2
í fyrstu nokkuð dreymin,
3
flökrar ei við flöskustút
4
og fannst hún eiga heiminn.
5
Af Sigurði ei datt né draup
6
dálítið hissa stundum,
7
frjálslega samt á flösku saup
8
með fríðum þýskum sprundum.
#1235
#1236
1
Þótt að flýir burt úr bænum,
2
til Borgarness í einum grænum,
3
óskir frómar of oss þigg.
4
Gefi þér jafnan Guð á hæðum,
5
góða heilsu, nóg af skæðum,
6
gæði lífs og "bankabygg"
#1237
1
Þegar út á stoppistöð
2
úr strætisvagni skyldunnar
3
stígur, mæta mundi það
4
mest að njóta gleðinnar.
5
Sæktu út á sólarmið
6
sorgar - laus við tárin.
7
Gleðileg jól og gæfu og frið
8
gefi þér næstu árin.
9
Á Elfu - lífs er öldurót
10
oft, og kvikul bára.
11
Gakktu, vinur, gleði mót
12
og gengi næstu ára.
…
#1238
#1240
#1241
Kveðja til Gunnu Kaldal á afmælisdaginn 1968
1
Íslands fríða fjallasól,
2
fegurst prýðin svanna,
3
veiti þér lífið vörn og skjól
4
í veðrum hríða og fanna.
5
Fegurð þín mér færir yl,
6
frið og yndið góða,
7
þér vil ég um árabil
8
ausa úr brunni ljóða.