Vísnavefur
Vísur — leitaðu eftir titli eða texta.
369 vísur
Heillaskeyti29. desember 1980
Jólafrídes 1972
1
Ég býð þig velkomna vinan bjarta,
2
sem vermir stöðugt mitt aldna hjarta.
3
Dimman hverfur en dagsljós skín
4
ef dvelur þú hjá mér ástin mín.
5
Láttu því Davíð lönd og leið
6
en leyf mér þig elska um nokkurt skeið.
7
Þá skal drukkið, duflað, kysst,
8
úr druslum farið innst sem yst.
9
Þótt aldinn ég sé, er enn mitt blóð
10
ólgandi af þrá, mín vinan góð.
11
Mín ást er glóandi, ofsaheit,
12
allt öðruvísi en uppí sveit.
Bókamarkaður í Iðnskólanum1969
1
"Markað-bóka" mega ei telja
2
manngarmar, sem bækur selja
3
finna verða fínna nafn.
4
Mannskepnuna má svo kvelja,
5
margt er ekki um að velja,
6
reynið að kalla það "ruslasafn".
Bókamarkaður1972
1
Víst er um lokun válegt að heyra
2
og vonlegt að fækki hárunum.
3
Vona þó að tiltölu þið tapið ei meira
4
en á tíu síðustu árunum.
5
Allt er hér fullt um borðin og bekki
6
býsn er af ljóðum og æfisögum,
7
en mikið er skítt að mega nú ekki
8
um messutímann okra á sunnudögum.
Bókamarkaður1974
1
Bísar tveir með bókamarkað
2
býsna lengi hafa slarkað,
3
á útgefendum alltaf traðkað,
4
enga samúð haft með þeim.
5
Halda svo með hagnaðinn á kvöldin heim.
6
Á Hagkaup þeir nú hafa snúið
7
í húsnæði til þeirra flúið,
8
halda þeir geti heimskan rúið
9
og haft af því sitt lifibrauð.
10
Ágirndin úr öllum æðum ekki er dauð.
11
Í verkfallslok með veiku starti
12
vogar opna, sá litli bjarti.
…
Bókamarkaður1975
1
Bágt er nú enn með þennan bókamarkað,
2
bara eitt ár - svo er út honum sparkað.
3
En ennþá tókst honum afdrep að finna,
4
nú iðnaðarmenn ætla honum að sinna.
5
Í kjallaraholu þeir kúldra honum niður
6
líkt og kalla úr "strætinu" áður var siður.
7
Já, menningin verður að lúta oft lágt
8
mikil lifandi skelfin eiga þeir bágt.
9
En líklega verð ég að lýsa þeim nánar
10
þeim litla og stóra, nú gamanið gránar.
11
Sá litli svo undurhreinn, allur svo ljós,
12
sá langi og svarti á ei skilið neitt hrós.
…
Seingetinn bókamarkaðsbragur1976
1
Menning væri í molum
2
í minni höfuðborg,
3
ef ekki væri árlega
4
eitt bókamarkaðstorg.
5
Þar eigum við allt undir
6
að ekki bregðist þeir,
7
sá langi og sá litli,
8
ég lýsi þeim aðeins meir.
9
Ágirnd skín úr augum
10
öðrum þeirra mest,
11
enda hefur hann eignast
12
obbolítinn hest.
…
Bókamarkaður1976
1
Meðan benzínið endist á bílum er harkað,
2
já, bílstjóraliðið er býsna kjarkað,
3
þeir bera úr býtum Bókamarkað.
4
Loðnan er farin í landi er slarkað,
5
langtímum setið, um launin þjarkað,
6
lokum þá inni á Bókamarkað.
7
Enn lifir í kolunum, lengi hefir snarkað,
8
í dómsmálaráðherran drjúgum er sparkað,
9
hann lendir að lokum á Bókamarkað.
10
Á friðaða svæðinu freklega skarkað,
11
ryðkláfar "Betu", réttlæti traðkað.
12
Hrellum því breta með Bókamarkað.
…
Bókamarkaður á Góu1978
1
Bágt er nú stand í Barmahlíð
2
Bókamarkaðar komin tíð.
3
Truflun komin í taugarnar
4
þótt talsvert menn sæki í laugarnar.
5
Peningataugin er teigð og spennt
6
tíðum hefir það manninn hent.
7
Helta að auki hrjáir hann,
8
hörmung hvað lagt er á einn mann.
9
Haltur með Jónasi högtir hann samt
10
hringferð um bæinn, sem þeim er tamt.
11
Þefandi og leitandi að literatúr
12
lifna við allir, ef hann er klúr.
…
Bókamarkaður1979
1
Andleysið mig er að hrjá, í eymd ég stefni.
2
Þetta er ekkert yrkisefni
3
engin sérstök nöfn ég nefni.
4
Hvað skal segja um seggi þá
5
er selja bækur Markaði á?
6
Útgefendur ávallt flá
7
alveg inn að skinni.
8
Þeir eru góðir þessi stóri og minni.
9
Útlit þess langa var lengi svart,
10
sá litli með yfirbragð fremur bjart,
11
nú er úti um allt það skart.
12
Grár sá langi en grettinn hinn.
…
Bókamarkaður1980
1
Lof sé þeim sem listum unna,
2
leiða oss til nægtabrunna.
3
Verst er ef þeir klæki kunna
4
og kúnstina þá vel þekkja.
5
Einfaldan er auðveldast að blekkja.
6
Þekki ég tvo bóka-bísa
7
burðast skal þeim nánast lýsa,
8
englahjörtu engin hýsa,
9
innrætið líkast myrkri.
10
Bókamarkaði stýra þeir hendi styrkri.
11
Annar þeirra er langur, ljótur.
12
Líklega hinn versti þrótur.
…
Bókamarkaður1982
1
Um bókamarkaðs brall og svall
2
brag vart gera nenni,
3
en kannski um lítinn ljósan kall,
4
löglegt gamalmenni.
5
Hann er snar í snúningum
6
snaggaralegur að þrefa.
7
Stóryrtur og stjórnsamur
8
þótt standi vart úr hnefa.
9
Peninganna- hans pínd er taug
10
prangið þenur strengi.
11
Í vesturbæjar- volgri laug,
12
vinurinn baðar lengi.
…
Aðalfundur Verslunarbanka Íslands1979
1
Nú er háttur annar á
2
ekkert þref um Villa H.
3
Garðarssonur Gvendur H.
4
og garpar fleiri smjúga.
5
Allir klappa, amen sagt og eintómt hallelúja.
Áramótauppgjör
1
Á laugardag burt úr bænum
2
bruna halur og sprund.
3
Áður en úti er dagur
4
ætla að bænum Grund.
5
Allt gengur eins og í sögu
6
óðfluga rennur hjá,
7
Kjalarnes, Esja og Kjósin
8
komin að Brynjudalsá.
9
"Best er hér aðeins að æja
10
og úr sér rétta um stund".
11
Oddvitinn út úr jeppa
12
ástfanginn hjálpar sprund.
…
Kaffistofan
1
Dregur upp mynd með dár og spé;
2
drátthagur konstner Halldór P.
3
En ef að í hann fjandinn fer
4
ferlega skopast hann að þér.
5
Að karigera er konst og vandi
6
ef karakterinn er ekki í standi.
7
Þótt Magnús sé maður mikilsverður
8
manninn vantar svip - hann er svona gerður.
9
Hátt hlær Pétur og pípu púar
10
hans pundafjöldi stólinn drúgar.
11
"Þetta er hold, sem ég hef til vara"
12
hann segir snöggt - "og þegiðu bara".
…
ágúst 1972
1
Þetta er mikið bölvað basl og blóðug seyra.
2
Enn mitt lengist asnaeyra,
3
ekkert gott nam frá þér heyra.
4
Láttu ekki lengur dragast lán að veita.
5
óðum magnast örðug streita,
6
eða ætlarðu kannski mér að neita?
7
Fari svo ég fái ei neitt, þig fjandinn hirði,
8
á afturfótum upp þig spyrði
9
andskotinn í Mammonsfirði.
#79
desember 1970
Til Bergþóru og MaríusarÁramót 1970-71
1
Þökkum margan þeginn greiða
2
þökkum leiðsögn norðan heiða.
3
Biðjum guð og gæfu leiða
4
göfug hjón - hið nýja ár
5
gleði veita og gnægðir fjár.